HÆTT
31.08.2006 08:54:10 / gledikona

spes týpa

þriðja vikan að taka enda í skólanum sem þýðir ein vika til viðbótar og svo próóf.

sumarið hefur verið mér frekar ljúft, New York ferðin var vægast sagt yndisleg í alla staði. Markmið ferðarinnar var að halda kortinu sjóðandi og ég held að mér hafi tekist það ágætlega. ástæða kortamarkmiðsins var að svo þegar ég kæmi heim og fengi útborgað gæti ég sparað þann pening vegna þess að ég ætti ekki að þurfa eina einustu flík eftir ferðina. þar sem ég þjáist af grafalvarlegri fatasýki hef ég keypt mér þrjár peysur, buxur, jakka, kjól og eflaust eitthvað meira eftir að ég kom heim. en þar sem ég er ekki með peningavit á við þriggja ára barn, hef ég fyrirgefið mér og fatarsýki er veiki/fíkn og því hef ég líka fyrirgefið. ég er að takast á við eina fíkn í einu og ákvað að enda á fatasýkinni þar sem mér er ekkert sérlega illa við hana. núna er ég að takast á við kókakóla light "fíknina" mína. ég hef verið goslaus í þrjá daga og langar bara ekkert í gos. þannig þetta var kannski engin fíkn.

í sumar hef ég meira og minni verið að vinna í sjálfri mér, ofboðslega erfið vinna sem getur tekið rosalega á taugarnar. en maður uppskerir því sem maður sáir og það er greinilegt að ég hef sáð vel, þar sem ég vil meina að ég er tífallt betri manneskja eftir sumarið þó svo ég sé þúsundfallt lélegri bloggari.(ekki það að ég hafi verið sá heitasti).

í morgun þegar ég mætti í skólann mæti ég Viðari stærðfræðikennara sem er ekkert nema yndislegur maður svo það er kannski ekki frásögufærandi nema hvað að hann tilkynnir mér það að ég sé frekar spes týpa(uppúrþurru). ég vissi ekki hvort ég ætti að taka því sem hrósi eða móðgun, þannig ég spurði hann nánar hvað hann meinti með því.

Viðar:mér þykir þú frekar spes týpa, Guðrún.

Guðrún: jáááh....

..5sek seinna.

Guðrún: ..hvernig þá?

Viðar: þú ert blanda af klárheitum og kæruleysi með góðan karakter.

þessi maður hefur svo rétt fyrir sér með eitt og það er kæruleysið. ég ætti að fá  löðrung á 3klst. fresti ef ekki oftar  fyrir þetta ógeðiskæruleysi. ég er alltaf á leiðinni að læra. bækurnar eru fyrir framan mig í ca. 3 klst og ég ákveð alltaf að snúa því uppí kæruleysi og skoða frekar allar bloggsíður/klámsíður landsins og  ef að það er mikið að læra þá legg ég mig oft. HVAÐ á ég að gera við sjálfa mig!?

Aaa..hætt að væla og farin að gera eitthvað að viti.

spurning með að fá sér nýtt blogg eða bara sleppa því að vera með blogg. þetta er tveimum of vafasamt  núna þar sem ég er orðin svo einstaklega þroskaður og rólyndur einstaklingur eftir að hafa unnið vel í sjálfri mér í sumar. ég veit ekki hvort ég fái klígju eða ekki þegar ég fer inná þetta blogg.

kv.Guðrún Jordan


» 8 hafa sagt sína skoðun

20.07.2006 10:08:13 / gledikona

NewYORK

ég er farin til NewYork.

sælar


» 7 hafa sagt sína skoðun

22.06.2006 22:19:05 / gledikona

sumarfrí.

langar að tilkynna ykkur það að eftir aðeins 17klst. verður mrs.Guðrún komin í sumarfrí.

ég ætla að liggja hreyfingarlaus og ekki að gera neitt þangað til ég tel mig tilbúna til þess að gera eitthvað annað eftir þetta erfiðsár.

einning ætla ég að fá mér tvöfaldan gym&tanic í gríð og erg.

hugur minn hefur líka sagt mér að ég eigi að vera extra góð við mig og gera allt sem ég vil í sumar.

mamma hefur líka sagt mér að hún hafi pantað far fyrir mig til New York 20.júlí í 11.daga. ég elska þessa foreldra mína.

Sigrún hefur líka tilkynnt mér að Berti Buff/pussi litli(dateiðhennar) sé glæpamaður í mafíunni, ekkert að því.

Krilla krúsí var boðið á date afn múslimatyppi, skil ekki af hverju hún neitaði.

mér er aldrei boðið á deit. ég sætti mig við það þar sem ég geng í ómannsæmandi everlast buxum sem eru 12 nr. of stórar, bleikum skítugum bol og með svitalykt og mætti halda að ég ætti ekki hárgreiðu né andlitsfarða. ég tala nú heldur ekki um það að ég kann ekki að vera í sokkum.

djöö get ég ekki beðið eftir að það komi nýtt kjöt í skólann á næsta ári, vá hvað ég skal mixa alla nýnema drengi í buff að hætti Berta buff.

sumarkveðjur,

Guðrún:P

ps.Berglind þegar ég hef risið uppúr ofsaletinni kem ég og sæki töskuna mína. heimta líka að við fáum okkur að B.O.R.Ð.A bráðlega.


» 4 hafa sagt sína skoðun

09.06.2006 20:26:24 / gledikona

DRIVER.

eins og sjá má blogga ég bara þegar líða fer að prófum og ég fyllist stressi, kvíða og leti.

ég fór uppí íþrótthús áðan þar sem ástkær faðir minn var að grilla ásamt svínslegum brósa sem gaf mér mat með mér í heim og ætlaðist til þess að ég gæti keyrt með disk fullan af sósu heim, ég hélt ekki og vældi í smástund þangað til hann hennti mér útí bíl með sósudiskinn. ég vældi inní mér útí bíl í smá en ákvað svo bara að reyna á þetta. MÉR tókst að keyra heim með sósudisk í vinstri, einbeita mér að keyra, einbeita mér að hella ekki sósu í bílinn og á mig, skipta um gír og útvarpsrás, setja stefnuljósið á og halda kúlinu alla leiðina heim. hér með hef ég kosið mig sem allra heitasta driver í heimi, ef þú getur toppað þetta skal ég veita þér "allraheitastidriverinn" verðlaunin sem eru svo langt frá því að vera gefins.

kv.heiti driverinn.8)


» 6 hafa sagt sína skoðun

12.05.2006 01:59:56 / gledikona

illa gefin og heimsk gella.

spurt er um kvennkyns geðklofa.(sem á ekki tilvistarrétt á þessari jörðu), einkenni:

*peppornifeis.

*búin að óverdósa af Hydroxicutpillum í dag vegna athyglisbrests, einbeitingaskorts og svefnþreytu. (8töflur virðast samt ekki nóg)

*fór á æfingu í morgun kl.7. sem sannaði í alla staði að hún kann ekki að nota það litla sem guð gaf.

*er að missa þvag úr þreytu.

 *með alvarlega rót.

 *grafalvarlega illa haldin af tölvufíkn.

*er að skíta á sig í lífinu..

.......hver er konan?

vegleg verðlaun í boði!!


» 6 hafa sagt sína skoðun

10.05.2006 17:02:30 / gledikona

hóphenging!

ég hef komist að því síðustu daga að ég hef enga sjálfsvirðingu!

mér líður svo sálarlausri, óelskaðri og ómögulegri!

og hvar er sjálfsaginn?


» 3 hafa sagt sína skoðun

03.05.2006 03:29:06 / gledikona

allt á niðurleið!

mér hefur sjaldan brugðið jafn mikið og þegar ég gekk inní eldhúsið á heimili mínu í fyrrdag og sá þar pabbaling sem stóð við eldhúsborðið og var að brjóta saman þvottinn! pabbi minn er samsagt hættur að fara með þvottarhúsið eins og það leggur sig 2 dögum fyrir heimkomu múttu frá Spáni í hreinsun, heldur er hann farinn að setja í vél jafnt og þétt. ég hafði orð á því að ég væri óendanlega stolt af honum, og sama kvöld setti hann í þrjár vélar.

það er alvarlegt samsæri gegn mér á heimilinu. systir mín fékk golfsett sem var ekki ódýrt, ekki nóg með að hafa fengið golfsett heldur var hún verðlaunuð fyrir að standa sig vel í golfi. þau feðgin fóru í "gulur bíll" leikinn og létu mig sitja aftur í og leyfðu mér heldur ekki að vera með. ástæða: "það geta bara verið tveir í þessum leik".ég sat aftur og beið eftir að eitthvað alvarlegt myndi gerast þar sem pabbi tók þessum leik svo alvarlega að hann gleymdi að fylgjast með akstrinu. við systur komumst líka að þeirri niðurstöðu að pabbi okkar heldur að við séum með kúk í stað heila. hann keyrði tvisvar framhjá sama gula bílnum til þess að næla sér í auka stig og hélt að enginn myndi fatta neitt. í dag fórum við líka útí búð. svo förum við útí sjoppu þar sem pabbi segir við stelpuna:"ég ætla að fá eina 1990kr innistæðu hjá Ogvodafone". mér misbauð svo mikið að ég drap ekki bara hann og alla sem voru inní sjoppunni með augunum heldur allt Eiðistorgið svo pabbi neyddist til þess að kaupa líka handa mér. með því skilyrði að ég sendi honum sms á hverjum degi.

ólibró er farin til Svíþjóðar í mánuð, ég á eftir að sakna hans. hvar á ég að fá "lánaða" peninga í þessum mánuði? ekki það að ég eigi ekki penge heldur það að ég tými ekki mínum peningum í vitleysu..allir mínir peningar fara frekar í algjöra vitleysu.

Hrabbósys sem lék sig dauða í dag og lét mig næstum því fá hjartaáfall gistir á Barðarströndinni alla næstu vikuna, svo ég verð alein heima í viku. Alein. vegna þess að flughræddi faðir minn hefur ákveðið að stinga af með golfsettið sitt að hitta múttu á spáni. það hefur ekkert breyst frá því ég var síðast homealone allar heimsóknir vel þegnar, líka tiltektir og morgunverðir í rúmið. ég er mjög jákvæð, opin og hress svo ekki vera feimin við að spurja hvort þið megið taka til, ég mun eflaust hugsa mig um hvort ég tými að leyfa tiltekt en ég hugsa samt að ég eigi eftir að svara játandi að lokum. 

ég keypti mér rautt kóreu ginseng í dag, ætla að prófa það í stað amfetamínsteranna.

farin að læra fyrir þýskuprófið sem er eftir örfáar klst. óskið mér góðs gengis.í tilefni þess ætla ég að leyfa ykkur að njóta með mér þýsku forsetningana, heppin þið alltaf!

aus, bei , mit , nach, seit, von, zu, durch, für, gegen, ohne um, an, auf, hinter, neben, in, über, unter, vor, zwischen. þetta hef ég aðeins þurft að synja þrjúhundruð sinnum fyrir bekkin aðeins útaf því að ég kann ekki að setja símann minn á silent. djók, ég þjáist af sýniþörf og athyglissýki á háalvarlegu stigi og ég læt símann minn í flestum tilvikum gefa frá sér hljóð svo ég fái að syngja f. bekkinn.

ps.þótt ég geri ekki milljón og sjö broskalla í hverju bloggi er ég samt ákaflega lífsglöð manneskja sem legg það ekki í vana minn að væla né kvarta. ég grenja aðeins til að fá mínu framgengt og væli þegar ég er þreytt og svöng. það mætti líkja mér við 2ára barn.

HDL, Guðrún Magnúsdóttir sem athyglisbrest, matargræðgi og sýniþörf á grafalvarlegu stigi.


» 4 hafa sagt sína skoðun

26.04.2006 19:22:36 / gledikona

veik á geði?

með hverri mínútu eykst stressið, kvefið, matarlystin, hliðarspikið og slæmheitin! ég er svo stressuð að ég veit ekki hvernig ég á að haga mér!

prófin nálgast, prófin sem ég hélt að ég gæti tekið með lokuð augun...svo er ekki. þetta verða pussuerfið próf, held ég. Munnlegt próf í þýsku á morgun úr bók sem ég skil ekki og á ekki. og ég fatta ekki hvernig þetta próf mun fara fram og gat ekki spurt hana í dag vegna veikinda minni. varla ætlast hún til þess að ég geti sest fyrir framan hana eldrauð í framan úr stressi og hún spurji mig bara einhverra spurninga á þýsku og ég eigi að geta svarað þeim. ég neita að trúa því að þetta próf ætli að ganga svoleiðis fyrir sig.

ég hef sjaldan skemmt mér jafn vel og í gær þegar ég fann barnalandsíðu forritunarkennara míns. sérstaklega þegar ég rakst á myndir af honum í baði. djöfull var mér skemmt.

köbenferðin var fáranlega skemmtileg!

 Guðrún

Eva og Guðrún

GUðrún, Júlía og Sylvía

Guðrún steinsofandi og Kalli eitthvað skrítinn á svip


» 2 hafa sagt sína skoðun

18.04.2006 20:58:39 / gledikona

maður hefur ekki meira en guð gaf!

þegar ég fæddist var ég innskeif.

stuttu eftir að ég fæddist fór ég í aðgerð vegna góðkynja æxlis í hálsinum.

ég fæddist líka með of teygt á milli fjórðu og fimmtu hryggjaliða, og var ofsaliðugt barn.

þegar ég var hætt að vera innskeif, farin að labba og búin að læra að hjóla tók ég mig til og reyndi að sýna hjólahæfileikana sem voru ekki meiri en það að ég flaug af hjólinu og þurfti að vera í fatla í ófáa daga.

þegar eg var 8 ára suðaði ég í strák sem var að vinna í íþróttaskólanum að skjóta mér á trampólíninu sem endaði með því að ég flaug af trampólíninu og lennti á gólfinu og handleggsbrotnaði.

var stjórnsamur krakki sem heimtaði að fá að vera fremst þegar við fórum á skíði og stjórna ferðinni sem endaði með því að ég gat ekki gengið í nokkra daga vegna þess að ég flaug inní snjóskafl og tognaði í lærinu.

þegar ég var 11 ára sagði fimleikaþjálfarinn minn við mig að ég væri of feit fyrir fimleika. þegar ég loksins meðtók orð þjálfarans hætti ég og fór í handbolta. það er ekki hægt að finna lélegri manneskju en mig í handbolta. ég má þakka fyrir að hafa fengið að mæta á leiki, þótt mér hafi sjaldan verið hleypt inná völlinn. einu sinni þegar ég var beðin um að gera mig tilbúna fyrir að fara inná, ég var svo upptekin í símanum að ég heyrði það ekki og hélt bara áfram í símanum þangað til Hildigunnur þjálfari öskraði á mig. metnaðurinn var ekki alveg í fyrirrúmi, enda hætti ég eftr ekki svo metnaðarfulla iðkun þar. pabbi fær samt klapp á bakið fyrir að hafa mætt á alla leikina og hrósað mér milljón.

áðan var booztdrottningin ég að gera boozt fyrir fjölskylduna, þegar ég var búin að öskra og grenja úr mér allt vit yfir því að þetta væri bara helvískt djöfulsins drasl þessi bévítans booztvél á þessu heimili, kom pabbi og fór að skoða málin og var ekki lengi að tilkynna mér að ég hlyti að vera ættleidd því að heimska tíðkast ekki í þessari fjölskyldu og stakk vélinni í gang.

kv.Mjónan sem er alltaf útað hlaupa, svo þegar  heim er komið hámar hún í sig 5kg af nammi.

köben eftir 3daga..veióveióveióóó


» 4 hafa sagt sína skoðun

06.04.2006 04:22:08 / gledikona

STOP.

já, nei. nú segi ég STOP!

klukkan er korter yfir fjögur, það er skóli á morgun og ég er að fá mér kvöldmat núna!

kvöldmaturinn minn: trópí og "hafragrautur" (blanda af vatni og höfrum í skál og sett í örbó í 2mín=kássa)

ef einhver er vakandi og á við sömu geðtruflanir og ég að stríða, látið mig vita! við gætum verið geðveik saman?! geðveikt!

farin að njóta kvöldverðarins,

Geðveikin.


» 3 hafa sagt sína skoðun

04.04.2006 03:33:17 / gledikona

snyrtipinninn ehf.

sælar,

er eðlilegt að fá sér 9tíma bjútíblund þegar maður á að vera sveittasta manneskja jarðar að taka til og gera fínt fyrir  heimkomu foreldra sinna frá stóra eplinu?

eftir að hafa talað nokkrum sinnum í símann og sent sms í svefni vaknaði ég kl.01 og fattaði að eg væri ekki byrjuð að taka til! ég var ca.30 mín að ákveða hvort ég ætti að taka til eða bara halda áfram að sofa:

þessar 30mín  velti ég fyrir mér hvort þau ættu virkilega skilið að koma heim í hreint hús eftir 10daga huggulegheit á vangefnu hóteli og fáranlega góðu skíðafæri. í rauninni eiga þau skilið að koma heim í skituga húsið sem inniheldur skítuga barnið, mig. en þar sem skítuga ég er smá dúlla í mér, er ég búin að fara útí búð kaupa brauð, túnfisksalat, rækjusalat, trópí, og diet coke sem þau geta snætt þegar þau koma eftir 3klst.                                                                                                                     ég er búin að vera sveitt að taka til, þrífa klósett, pússa spegla og brjóta saman föt í 2klst. hrós?

Árni Þór ég mun hefna mín virkilega. mér finnst ekki gaman að standa úti í kulda og týna upp glerbrot kl.03 þegar ég gæti verið draumalandi. ég er viss um að þegar ég fer í draumalandið mitt næst, verð ég að stinga þig með þessum glerbrotum, ég er það reið, en samt ekki það reið að ég stingi þig for real. góð?

ég hef ákveðið að bjóða aldrei strákum í heimsókn til mín aftur, mér finnst ekkert MJÖG skemmtilegt að þrífa pissubletti undir klósettum. nemaþetta sé eftir Alexöndru, hún hefur nú pissað á ólíklegustu staði, hver veit nema hún sé með fatish fyrir að pissa á klósettgólfið hjá mér?, ekki ég.

ég á svo góða vini að ég á erfitt með mig. Á laugardaginn vaknaði ég við afmælissöng, kórónu, nammi, bakarísmat og köku. mönsaði mig í drasl og fór í vinnuna, þegar ég kom heim voru þessar ógeðslega miklu dúllur búnar að taka til í húsinu mínu(gleymduði herberginu mínu?) ég var gráti nær, og vandræðaleg úr þakklæti. þið eruð ógislah mikið beztar!

Alexandra fór með mér á Friday´s um kvöldið og borgaði 3000kr. mér fannst það virkilega sætt af fátækri vinkonu að eyða peningunum sínum í að borða með mér. (hinsvegar hef ég haldið þessu kvikindi upp síðustu daga, (mánuði, ár)). hún bauð mér líka Nings máltíð á föstó, mér fannst það sætt af henni.

farin að taka til í herbóinu mínu, hef eitthvað heyrt fólk tala um drasl þar?

kv. Snyrtipinninn ehf.

ps. Köben eftir 17 daga.


» 2 hafa sagt sína skoðun

23.03.2006 01:42:43 / gledikona

ég staðnaði í þroska 12ára.

ég hef komist að því að ég verð minni og frekari í mér með árunum, þá má varla yrða á mig því þá er ég farin að grenja eða tryllist úr frekju. ég hef verið að undirbúa mig andlega fyrir brottför fjölskyldunnar og fundið kosti og galla við þetta allt saman.

*ég mun vonandi grennast þar sem ég kann ekki að elda og er illa haldin af nísku og þar af leiðandi á ekki eftir að týma peningunum mínum í mat, þótt allir mínir peningar fari í mat.

*vonandi mun þroski minn sem staðnaði þegar ég var 12ára fara í gang aftur, og þegar þau koma heim mun ég vera svo þroskuð að það verður hálf vandræðalegt.

*KANNSKI vonandi læri ég að vakna, þótt það sé eiginlega ekki séns, en samt kannski.

pabbsi fór og lét gera 3 nýja lykla þar sem ég er fagmaður í að týna lyklum, og ef hann dreifir ekki lyklum til flest ættmenn okkar, verð ég eflaust læst út þessa 10daga. hann lét líka setja þjófavarnarkerfi í húsið, sem ég neita að skilja þar sem ég mundi ekki rumska við bandarískiherinn að gera skotárás á húsið mitt, hvað þá þjófavarnarkerfi?

pabbi er orðinn  veikur, hann veikist alltaf 2 dögum fyrir flug, ég neita að vorkenna honum. ég mundi vorkenna honum ef ég væri að fara með en svo er ekki, svo mína vorkunn fær hann ekki, seiseinei.

ps.Viljiði plís bjóða mér ógeðslega mikið í mat, og veita mér ást og umhyggju á þessum 10 dögum.

takkogbless,

Guðrún


» 13 hafa sagt sína skoðun

15.03.2006 04:40:33 / gledikona

..sumarklæðnaður æskilegur því það er heitt í helvíti

afmælisbarn dagsins heimsótti mig áðan í m&m búning. ég hélt að hláturskast mitt tæki ekki enda. appelsínugula m&mið var hérna í smástund og gerði mér daginn sjö sinnum betri. ég kann að meta heimsóknir, hvað þá óvæntar. heimsóknir ókunnugasta fólks í heimi væru mér líka gleðiefni, enda er ég frekar þakklát manneskja.

ég vissi ekki i hvorn fótinn ég átti að stíga úr spenningi í dag þegar þegar litla syss sagði "Guðrún, einhver Gallúp er í simanum", ég elska þegar Gallúp hringir. mér fannst mjög fyndið að ljúga, pabba fannst það líka. þroskinn er ekki mikill hér á bæ.

múttzogdaddyho, frestuðu för sinni til NY um viku. þau kunna manna best að vera vond, því jú ég mun einmitt eiga afmæli þegar þau verða úti, en hefðu þau ekki frestað för sinni hefðu þau komið 2 dögum áður en minn heilagi afmælisdagur gengur í garð. ég reyndi að spurja þau hver ætti eiginlega að koma með morgunmat og alla pakkana í rúmið til mín, en ég held að þau hafi ekki skilið hvað ég var að reyna að segja vegna þess að ég grenjaði svo mikið og kafnaði næstum því úr frekju í leiðinni. ég ræddi þetta mál aðeins við hana Alexöndru áðan og bað hana að gefa mér mat í rúmið svo ég mundi nú lifa þennan dag af og gat ég ekki séð betur en tæki bara ágætlega í það, en þar sem Alexandra er mjög vanaföst manneskja og  ég afmæli á laugardegi get ég lítið treyst á hana þar sem vani hennar á laugardögum er að vakna í rekkju ókunngra manna, get ég ekki treyst á það. appelsínugula m&mið er manneskja sem ég treysti á, en mer finnst ég bara ekki eiga morgunmat í rúmið skilið frá henni, þar sem ég gerði ekkert fyrir hana í dag, annað en að éta gjöfina sem ég keypti handa henni í svona "égmundieftirafmælinuþínu"gjöf. einn daginn mun ég gera henni glaðan dag. ég lofa.

í skólanum hjá litlu syss er þema vikunnar "leynivinur" og gengur það út á að maður dragi miða með nafni einstaklings í bekknum sem maður á að vera góður við í viku án þess að hann fatti að þú sért leynvinur hans. Litla syss er búin að eyða óendanlegri orku og öllum sínum frítíma í að skipuleggja hvað hún eigi að gera fyrir sinn leynvin. kaupa dót, skrifa bréf og vera krúttleg við þetta allt saman. í dag fékk hún miða frá leynvinisínum á miðanum stóð "hæ gelgja. ef þú hættir að vera svona mikil gelgja verður kannski skemmtileg" ég dó næstum því úr hlátri þegar hún tilkynnti foreldrum mínum þetta við matarborðið í kvöld, og þurfti ég að taka mér dágóða pásu  til að koma í veg fyrir að þetta yrði minn dauðadagur. er búin að vera að hlægja aþessu í dag, en fór síðan að hugsa hversu illa þetta fór í hana og á föstudaginn þegar hún fær að vita hver skrifaði þetta, verð ég mætt áður en hún nær að klára nafnið hjá þessum andstyggilega dreng og verð ég búin að berja hann svo mikið að hann mun aldrei líta dagsins ljós aftur, hann getur samt aðeins sjálfum sér um kennt að hafa móðgað  litlu syss hennar Guggudjamm, því eitt veit ég að gelgjuskapur tíðkast ekki á Næsbalanum.

Elsku Sigrúnin mín innilega til hamingju með afmælið í dag. Núna getur þú verið úti eins lengi og þu vilt, heppin. Getur fengið að reynsluaka bíla, heppin. Getur keypt þér sígó, heppin. Getur tekið alla peningana þína útaf banka, heppin. Getur fengið þér tattú,heppin. Getur gift þig, heppin. o.s.frv.

Ég er farin að læra, og jafnvel fá hjartastopp vegna ofsaneyslu minnar á Latabæjar fjölvítamíninu, með ávaxtabragði.

Ps.sumarklæðnaður æskilegur í prófinu á morgun, því það er heitt í helvíti.

Pss.bið afsökunar á óskiljanlegri islensku og stafsetningarvillum

Blelli,

G to the U to the Ð to the R to the Ú to the N. töff?


» 9 hafa sagt sína skoðun

10.03.2006 00:57:20 / gledikona

ái

ég hef aldrei þurft á jafn miklri andlegri hjálp að halda og núna. ég vil að sjónvarpsstövðar íslands endurskoði efnið sem er verið að sýna:

þið sem sáuð miðaldra parið sem var í sex inspectors í kvöld þurfið eflaust líka á andlegri hjálp að halda.  ég hef aldrei setið jafn vandræðaleg við neitt sjónvarpsefni áður. ef ykkur fannst ekkert vafasamt við þennan þátt, þá er eitthvað að.

svo kynni ég að meta ef þið gætuð útskýrt fyrir mér þáttinn sem keflavíkingarnir ÓliGeir og bróðir hans (sem var í þessu að segja "hefuru slummað strák". mér finnst slumma ógeðslega fyndið orð og ætla að nota það hér með í tíma og ótíma) sjá um. ég neita samt að skilja húmorinn hjá þessum mönnum. ég neita líka að láta bjóða mér uppá tvær kynsystur í sleik í djemminu. mér finnst það svo ósmekklegt að ég á ekki orð yfir það.

bkv.

Guðrún


» 2 hafa sagt sína skoðun

07.03.2006 21:23:55 / gledikona

köttaða konan.

tók mig til og skeit á mig í munnlegudönskuprófi í morgun. sem minnir mig á það að Hrafnistustelpurnar mínar, ég er ekki jafndugleg í skólanum og þið haldið..ég er bara ekkert dugleg. aðgangur verður veittur að mér á morgun kl.19:00, fólk getur komið og slegið mig eins fast og mögulega hægt er án þess að fá samviskubit,því ég á barsmíðar fyllilega skilið!

ég veit að fólk hefur verið að velta því fyrir sér hvort ég ætli ekki að gera neitt í því að vera komin með rót niðrá rass, og illa slitið hár. Jú, ég ætla að gera eitthvað í þeim málum. hef bara ekki gefið mér tíma í það og veit ekki hvenær ég ætla að gera það. þannig þið verðið bara að læra að lifa með þessu eins og ég.

áðan kynntist ég því hvað er að svitna þegar ég fór á æfingu með einkaþjálfaranum mínum sem tekur 200kg í fótapressu. a.k.a Marín massi                                          eftir æfinguna fór ég með visakortinu mínu(pabba) og verslaði bara hollan mat. ég heimta hrós þrátt fyrir að ég kunni manna best að missa mig í sukkinu inná milli.(alladaga).

að lokum. Sigrún Þrullmóðsdóttir og allir sem hafa verið með þær yfirlýsingar að ég sé vond stóra systir ættuð að skamast ykkar. ég er ábyggilega heimsins besta systir sem hægt er að eiga.

*hver er það sem lánaði litlu syss spöngina sína í morgun?                                      *hver var það sem vaknaði 10mín fyrr á öskudaginn til þess að mála litlu syss?          *hver er það sem leyfir litlu syss og vinkonum hennar að gista í sínu rúmi svo þær geti verið í sama rúminu þegar þær gista saman?                                                                                                               *hver er það sem gaf litlu syss dieselbuxur í jólagjöf?                                                 *hver er það sem leyfir litlu syss stundum að sofa í mikkamús bolnum?.

ÉG -ÉG -ÉG -ÉG. besta systir í öllum heiminum.

ps.ég hef ákveðið að gerast Fitnessdrottning alheimsins.

virðingafylst.

köttaða fitnessdrottning með heimsins mestu rót.


» 3 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 4